Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

:: :: Velkominn :: ::

:: :: Velkominn :: | :: www.gummon.blogspot.com | gummon@best.is | Simi: 6945885 | MSN: gummij85@hotmail.com ::
[::..Teljarinn..::]

    Þú ert númer

[::..Bloggarar..::]
Halli
Lilja
Sunna
Hildur
Erla
Stefanía
Ívar
Aron
Hjalti
Inga
Svala
Kolla
Elín
Palli #1
Palli #2
Ómar & Ægir
[::..Samtök..::]
Spicegirls
Eðalkvendin
Lufsur
Virgins
Prettywoman
Strandverðir
Pungar
Vatnaliljur
[::..Skemmtilegar síður..::]
Batman
Fugly
Mogginn
Nfb.is
Leikir
LeikjaNet
Partý.is
Flassið
Klámið
[::..Sportið..::]
Valur.is
Fótbolti.net
Sport.is
Gras.is
Planet Football
Man Utd
HSÍ.is
[::..Upplýsingar;..::]
gummon@best.is
MsN-ið mitt
Fólk.is/GummOn
Um mig
Handboltinn
Gestabókin
[::..Myndir..::]
Partý hjá Rikka
Afmælið Rikka
Afmælið Herdísar
Árshátíð FB
Myndirnar mínar
Myndir 2004
[::..Gamalt..::]

:: miðvikudagur, apríl 27, 2005 ::

::.Íslandsmeistari


Jæja góðir lesendur. Ég er alveg ennþá á lífi bara svo þig vitið....ég vil að vísu afsaka hvað ég hef verið óduglegur að blogga. Það er bara ekkert merkilegt búið að ske þessa síðustu daga. Það er ekki mikið um slúður, engar fréttir og já bara ekkert (vá hvað ég er ómerkileg persóna).

Ég ætlaði fyrst og fremst koma því að, að ég er Íslandsmeistari í handbolta :-D Veiii....ég er búinn að æfa í 14 ár og þetta er minn fyrsti alvöru titill með mínum flokk. Þetta var sko hreinasta snilld. Við unnum Víking í tvíframlengdum leik 33 - 30. Ég var góður í vörn en ekkert sérlega góður í sókn, skoraði aðeins 4 mörk. En þegar 10 mín. voru eftir að leiknum þá vorum við 7 mörkum undir 19 - 26 en við sýndum þvílíkan karakter í lok leiksins og náðum að jafna leikinn 26 - 26....þetta var geðveikt!!



Hérna eru Íslandsmeistarar í 2.flokk árið 2005...


En besta við þetta að þessi leikur var spilaður á laugardegi og það var sko rosalegt djamm um kvöldið sem var að vísu pínu misheppnað hjá mér. Við fórum í Kringlukránna og fengum okkur að éta og drekka. Svo var farið til Patta í partý þar sem meistaraflokkur kvenna kom til okkar og þar var mikið sungið og drukkið. Svo þegar klukkan var að verða 2:00 þá fór ég í bæinn. Ég var orðinn nokkuð ölvaður og ég fór beint á Torvaldssen EINN. Þar fékk ég fullt að drekka hjá Elvari og þaðan fór ég á Ópus að hitta Helga og Rikka. Já Helgi var eitthvað utan við sig og fór með kellingunni heim, þá fór ég til Rikka.....jáhhh, hann var svo upptekinn á einhverju trúnó með einhverjum gaur. Þannig að ég fór bara á dansgólfið að dansa við Valdísi og einhverjar tvær aðrar stelpur. Mér fannst ég eitthvað svo einmanna að ég fór á Sólon EINN. Þar hitti ég bróðir minn og ég settist við hliðiná honum og fékk mér einn öllara. Hann var eitthvað svo edrú að tala við einhverjar stelpur, þannig að ég ákvað að fara á Torvaldssen og vonast til að hitta eitthverja skemmtilega. Ég fór inná klósett og ég fékk mér að pissa. Svo leit ég á spegilinn og ég hugsaði bara með mér : ,,VÁÁ hvað ég er sorglegur, ég EINN að drekka, og er ég ÓGEÐslega fullur"!! Þannig að ég fór bara heim EINN. Já það má segja að þetta hafi verið sorglegt kvöld :-S En vonandi fer þetta að batna eitthvað!!




Hérna eru strákarnir Einar, Kiddi, Elvar og Orri...




Góð mynd af Pálmari og Einari...



Váá ég trúi ekki að sumarið sé bara að ganga í hús.....okey ekki veit ég afhverju ég sagði "að ganga í hús"...en allavega, það er bara kominn svona fílingur í mig, góð grasalygt úti, trén farinn að vaxa og fuglarnir farnir að syngja og já líka bara svo gott veður alltaf. Ég verð nú að segja að það jafnast ekkert á við að djamma í góðu sumarveðri :-D Það var náttúrulega óendanlega gaman í fyrra hjá okkur strákunum sem verður vonandi í ár. En hver veit....kannski verður bara alls EKKERT.....!!!


Ég fór vestur síðustu helgi, ég var að hitta besta vin minn hann Steina. Alltaf jafn gaman að hitta þann dreng ásamt kærustu hans. Tilefnið var að vísu að systir hans var að fermast og var líka ofsalega gaman að hitta allt þetta fólk fyrir vestan. Að sjálfsögðu var djammað á laugardeginum, en við fórum á Sjallan á Ísafirði þar sem Hegli Idolstjarna var að spila. Ég verð bara að jata að hann er bara nokkuð góður því það var hörku stemmning :-D


En ég ætla að hætta núna því ég hef ekkert svo mikið að segja í bili þangað til næst

Kveðja GummOn



:: Gummi Jónss miðvikudagur, apríl 27, 2005 [+] :: |
...
:: fimmtudagur, apríl 14, 2005 ::
::.Handónýtur bíll


Jæja það er svolítið langt síðan að ég bloggaði og hef ég nú ákveðið að blogga smá fyrir ykkur. Það er ekkert sérlega mikið að frétta af mér, eða þá þetta bara það sama....er enn að vinna á Torvaldssen og hjá pabba mínum og svo er ég að æfa á fullu í handboltanum, fótboltinn er byrjaður á fullt því hann byrjar bara í næsta mánuði og svo náttúrulega er ég bara alltaf laus og liðugur.....engin kona....enginn kall og ég veit ekkert afhverju ég sagði kall því ég er EKKI hommi.



En á morgun er svo komið að 4-liða úrslitum og lendum við á móti Haukum. Þetta verður stórleikur því Haukar eru með ótrúlega sterkt lið....Ásgeir, Andri og Gísli sem eru allir í byrjunarliði meistaraflokks Hauka verða líklega með. En það verður spilað á morgun í Seljaskóla í Breiðholti klukkan 21:00. Við verðum að vinna því ef við vinnum þá komumst við í úrslitaleikinn sjálfan sem verður á laugardeginum klukkan 15:30.


En já ég get nú ekki sagt en að nýji bíllinn minn er ekkert nýr lengur því hann er bara handónýtur. Það er allt að honum, ljótur að utan en kannski allt í lagi að innan. Ég segji bara við allan að innri hliðin skiptir máli :-D En allavega er hann ökuhæfur og get ég keyrt bílinn og það er eina sem skiptir máli. Ég tók nokkrar myndir af bílnum áðan þar að segja ef þið hafið ekkert séð bílinn hvernig hann lýtur út.




Sjáiði nýja bílinn minn sem ég er búinn að eiga í 2 mánuði eða svo....




En vááá.....ég er gjörsamlega að missa áhugan af eldri kvennþjóðinni í dag. Núna síðastliðna 5 mánuði er ég búinn að vera fá sms frá einhverjum. Ég vissi fyrst ekkert hver þetta var, en hún sagðist bara elska mig og hún væri geðveikt hrifinn af mér. Ég fór og athugaði hver ætti þetta númer.....vitir menn HÚN ER FOKKING 38 ára. Ég hraunaði yfir hana yfir því hversu sorgleg hún væri að reyna við 19 ára strák sem væri að vísu að verða 20 ára. En hún virðist ekkert skilja að mig langar ekki að tala við hana. Í morgun þá fékk ég sms frá þessari beylgu og í smsinu stóð: ,,Viltu koma og ríða mér"!! Ég hugsaði með mér að þetta væri pottþétt helvítis merin og ég athugaði númerið og vitir menn þetta var hún!! Ég veit ekki hvað skal gera en heitir hún Elínborg og á heima á Akureyri. Ég fór að ganni mínum og leitaði af Elínborg og þar komu nokkrar konur upp og hver veit nema að hún sé á einni myndinni.



Þessar allar heita Elínborg, hver ætli það sé.....



En já...ég er bara með í maganum útaf þessu því ég skil ekki neitt í neinu. Þetta er að vísu ekki í fyrsta skipti sem hún sendir mér eitthvað svona sms :-S hún hefur alltaf sent mér einhver dóna-sms og ég er að verða geðveikur því það er víst ekkert sem stoppar hana.


En já áður en ég enda þetta blogg þá tók ég mynd í gær sem heitir Open Water. Hún situr svolítið í mér :-S svolítið sorgleg mynd sem ég mæli með að allir sjá því hún er byggð á sannsögulegum atburðum. Ekkert vel tekinn og ekki vel leikinn en ég bara elska sannsögulegar myndir og þetta er bara snilldarmynd því það eru engar tæknibrellur í myndinni og kafararnir eyddu 120 klukkustundum ofaní vatninu. Takiði þessa mynd...



Open Water...



Kveðja GummOn

:: Gummi Jónss fimmtudagur, apríl 14, 2005 [+] :: |
...
:: mánudagur, apríl 11, 2005 ::
::.Hversu vel þekkiru mig


Ég ætla að hætta að tala um óheppni þetta helvítis blogg. En já ég er mjög bitur því bíllinn minn er bara ónýtur því hann er bara í rústi. Ég keyrði aftan á núna fyrir stuttu og núna er hann bara í rústi. En allavega ég hef ekki bloggað lengi og veit ég í rauninni ekkert um hvað ég á að blogga. Það er ljóst að ég fer ekki norður næstu helgi því úrslitinn í handboltanum eru akkurat þessa helgi og get ég ekki farið til Akureyrar, pínu fúlt en við eigum líka góða möguleika á því að verða Íslandsmeistarar næstu helgi.


Ég bjó til smá próf um mig og vil ég endilega að þú takir það lesandi góður og þá veistu bara hvort þú þekkir mig eða ekki ;-D

Prófið um GummOn


Kveðja GummOn


:: Gummi Jónss mánudagur, apríl 11, 2005 [+] :: |
...
:: miðvikudagur, apríl 06, 2005 ::
::.Akureyri framundan


Jæja kæru lesendur. Þá fer að styttast að maður skellir sér aftur til Akureyrar. Við erum nú þó nokkrir sem ætlum að leggja leið okkar til Akureyrar en það verður ekki fyrr en þarnæstu helgi, eða 15.apríl. Tilnefnið er að það er söngvakeppni framhaldsskóla og verður mikið af fólki á Akureyri þessa helgi einmitt. Ég og Helgi fáum aðeins gistingu á vistinni því ég held að við getum bara ekki troðið fleirum inn þar, gæti hugsast að Halli fái líka gistingu. En manni er farinn að hlakka þvílíkt til vegna þess að það er alltaf jafn gaman að fá að hitta Steina félaga.



Ég og Steini...úlalla :-D



En vááá hvað mér hlakkar mikið til sumarsins. Það lítur eiginlega ekkert sérstaklega vel út þessa daganna því það er búið að vera snjókoma hér og þar...brrr djöfulsins kuldi líka :-S En vonandi fer þetta að lagast því ég byrjaður að naga á mér neglurnar af spenningi því þetta verður snilldar sumar og bara hjá okkur félögunum. Það má nefna að ég, Helgi, Palli, Halli, Ívar erum að fara saman út til Benedorm og verðum þar í tvær vikur. Við förum út 4.ágúst og gistum á hóteli sem heitir Paraiso Centro. Svo besta við þetta að það eru fullt af fólki að fara á sama tíma og við t.d. Valdís, Herdís, Begga og svo fer annar hópur Salóme, Anna Karen og einhvað fólk sem þau þekkja, svo Rakel vinkona mín fer með einhverri vinkonu sinni og örugglega eitthvað fleira fólk þannig að þetta verður argasta snilld.



Ég fann enga stærri mynd af hótelinu...


En já ég var að skoða fullt af myndum á Flass.net og eru þar mikið af skemmtilegum myndum frá í gamla daga og það voru tvær myndir sem stóðu uppúr og varð ég að deila þeim myndum með ykkur.....



Já þetta eru töffararnir Matti og Andri og eru þeir heldur betur hressir á kantinum þarna...


Ég var að spá núna í gær þegar ég var að tala um kúk þá fór ég að velta því fyrir mér hvort stelpur kúki. Ég hef aldrei orðið vitni af því og hef aldrei vitað um neinn karlmann sem hefur orðið vitni af því. Það er spurning þó hvort aðeins mömmur og litlar systur kúka en engar gellur. Þetta er allavega ég búinn að halda mjög lengi. Ég bíð ennþá eftir sönnun fyrir því að þær kúki. Ég vill þá sjá það þá með mínum eigin augum og vera viðstaddur. Ég hef alltaf haldið að þær fari bara inn á klósett til að pissa eða losa um einhvað sem ég veit ekki hvað er en er samt ekki kúkur. Allavegana er engin lykt eða bara blómalykt. Einhvern tímann þegar ég var á fylleríi þá spurði ég eina stelpu út í þessi mál. Og svaraði hún: Jú þetta er ára löng þjálfun snerpu, viðbragðs og rétt mataræði, en lykillinn er að bíða með að kúka þar til á síðustu stundu þannig að kúkurinn kemur um leið, enginn rembingur og vera nógu snöggur að sturta niður og nauðsynlegt er að hafa beint flæði frá rassgati og að vatni þegar þetta allt vinnur saman þá kemur enginn lykt, en rétt er að benda á að þetta er aðeins fyrir vant fólk að gera og ætti enginn að fara út í þetta nema með nákvæmri leiðsögn frá konum. Athyglisvert, mjög athyglisvert. Mér langaði bara að deila þessu með ykkur.



Þessi mynd er tekinn eftir að ein stelpa var búinn á klósettinu...


Ég var inná BríetClub síðunni okkar strákana og ég veit ekkert hvað dróg mig þangað því við erum löngu hættir með hana eða er hún ekkert í vinnslu þessa daganna. Og ég sá að það var búið að commenta það sem við blogguðum síðast og varð ég að deila því með ykkur því þetta fékk mig virkilega til að hægja mikið.....

  • Nafnlaus : 13. febrúar 2005 - 23:23
    Hvað heitir "hit the pussy" lagið??
  • Halli : 25. febrúar 2005 - 17:07
    það heitir "er svo lélegt lag að öllum er sama" prufaðu að leita að því :)


Æji Halli minn þú ert snillingur ;-D hahaha..... En ég vil minna fólk á að ef það er ekki ennþá búið að kjósa þá er kosning enn í gangi!! :-)


Þetta er sá nýji...

Þetta er sá gamli...

Free polls from Pollhost.com
Hvor er flottari?
Þessi nýji Þessi gamli Reyndu að hafa einhvernveginn öðruvísi


Kveðja GummOn


:: Gummi Jónss miðvikudagur, apríl 06, 2005 [+] :: |
...
:: mánudagur, apríl 04, 2005 ::
::.Bílar eru bara vesen


Hæ hæ!! Ég er búinn að vera á Msn í dag og það mætti halda að fólk sé að uppgvöta síðuna mína bara í dag eða eitthvað, ég er allavega búinn að fá mikið hrós í dag fyrir gott blogg þannig að ég ætla bara að blogga hér með og hressa þetta blogg aðeins með nokkrum góðum pælingum.


Að eiga bíl nú til dags getur verið algjört vesen, því ég hef komist að því í dag. Ekki nóg með það hvað þeir eru dýrir hérna á þessu blessaða landi þá þarftu að borga morðfjár í bensín og þar að auki þarftu að hugsa vel um hann, þrífa, ryksuga og bóna. Ég veit ekki hvað oft ég er nýbúinn að stífbóna bílinn minn vera nudda allann helvítis bílinn með einhverju gummsi og svo þegar maður er búinn að þessu öllu saman og keyrir heim þá er bíllinn orðinn aftur skítugur. En svo aðal málið ef þú lendir í einhverju tjóni það getur kostað sinn pening. Ég vill bara benda fólki á að ef þú átt bíl með spoiler, þá myndi ég ekki fara á honum niðrí bæ og leggja honum einhversstaðar!! Því það er einhversstaðar svona "gaur" í bænum er bara að brjóta spoilera. En ég er búinn að eiga bílinn minn í rúman 2 mánuði og ég veit ekki hvað gerist næst :

  • Geymirinn á bílnum var ónýtur, þurfti að kaupa nýjan = 10.000 krónur
  • Eitt kvöld var ég að vinna niðrí bæ og þegar ég kem að bílnum mínum er búið að brjóta spoilerinn minn og ég þarf að borga það náttúrulega nema að gaurinn finnist = 60.000 krónur
  • Ég þarf að borga af bílnum á mánuði = 20.000 krónur á mánuði
  • Ég var að keyra um helgina og ég var nýkominn á sumardekkinn og ég var að taka beygju og bíllinn rann allur útaf hálku og ég rispaði tvær felgurnar illilega = ég veit ekkert hvað það kostar en maður lætur náttúrulega ekkert gera við það
  • Áðan ég var að bakka útur stæði og ég fór í einhvern helvítis kant og það kom smá dinkur, ég athugaði bílinn að aftan og já að sjálfsögðu þá er drullusokkurinn alveg að dekka af.
  • Svo tala ég nú ekki um hvað það er óendanlega mikill bensínkostnaður á bak við þetta.

    Þannig að gott fólk ég veit ekki hvort þetta sé bara ég, þá meina ég að hvort að ég sé svona vanhæfur að keyra eða þá bara það sé ekki sniðugt að eiga bíl. Allavega MJÖG dýrt.....

Þetta er rassinn á bílnum mínum, ég veit að þetta er dökkar myndir en það sést samt að spoilerinn er brotinn. En til gamans má geta að hann heitir einmitt Áki Já bíllinn minn...hver man ekki eftir þeim kappa.

Pæla í því að vera móngóliti..........okey ef þú ert búin/n að pæla í því segjum svo að þú ert móngóliti og þú átt þér vin sem er jú líka móngóliti. Ég var einu sinni að velta þessu fyrir mér hvernig þeir rífast. Ég hef t.d. aldrei séð móngólita rífast en það væri kannski pínu fyndið að heyra þá rífast því þá myndi maður kannski fá að heyra setningar eins og :

  • "Djöfull ertu þroskaheftur maður"
  • "Vá hvað þú ert vangefinn"
  • "Þegiðu helvítis þroskahefta fíflið þitt"

Já það yrði pínu fyndið að sjá þetta. En aftur á móti þá hef ég ekkert á móti móngólitum já, þeir fyndnir já!!

Ég hef aaaldrei séð heldur svartan móngólita...en ef þú ferð á google.com og leitar upp "mongó" þá koma ekkert nema einhvað svart fólk :-D mér fannst það helvíti fyndið



Þessi gaf út plötu og skýrði hana Mongó :-D hahahaha....

Alltaf þegar ég fer til Akureyrar þá finnst mér ekkert jafn fyndið og einn pizzastaður....hann heitir Móngó-pizza hahahaha.... :-D Ég hef að vísu ekki prufað að fara þarna inn, en kannski eru bara móngólitar að vinna þarna.



En nóg um móngólitatal og ætla ég að fara útí eitthvað allt annað. Ég ætla bara að vara þig við ef þú ert að éta ekki lesa sem kemur hérna framundan. :-D

Já ég ætla að leyfa hérna nokkrum orðum Daða banana komast hérna á framfæri því ég sá þetta á síðunni hans alls fyrir löngu á þeim tíma sem ég var að byrja blogga og fannst mér þetta helvíti fyndið.


Hver kannast ekki við kúkaklepra? Þegar kúkurinn festist í hárunum, eða þú skeinir og skeinir og ekkert virðist bíta á kleprana. Þetta vandamál með hárin eru nú aðallega hjá okkur köllunum (ætla ég að vona), en hvað er til ráða? þarf maður að raka á sér rassgatið? Ég ráðlegg öllum eindregið að láta slíka hluti aðeins í hendurnar á fagmönnum. En það er kanski ekki allt of margar klippistofur sem taka að sér slík verkefni en áhugasamir endilega hafið samband.Nú ágætis lausn á þessu er að hafa spegil við hendina eða á góðum stað þar sem þú getur skoðað kleprana áður en þú hefur skeiningu, þá er hægt að meta hvað þarf margar umferðir af pappír, hvort velja eigi mjúkan, tvöfaldan eða harðan pappír og svo skeina eftir þörfum. Ef þetta bítur ekki er eina lausnin að skella sér í baðkarið eða sturtuna og spúla á sér rassgatið þar til allt er farið.

Þetta er bara ráðgjöf og pæling til þeirra sem eiga við þessi vandamál að stríða. Ekki ég....



Ég hef mikið verið að pæla í því hvort fólk gerir svona lendingarpall (hreiður) þegar það kúkar. Kúkalendingarpallur (hreiður) er svo að það skvettist ekki klósettvatn á rassinn þinn þegar þú kúkar, semsagt þú setur klósettpappír ofan í klósettið áður enn þú byrjar. Nefnum ógeðslegt dæmi hér ef ekki er notaður lendingarpallur:..Strákur/stelpa er allveg að kúka í sig og þarf líka geðveikt að pissa, hann/hún sest í flýti á klósettið og pissar fyrst...svo kúkar hann/hún...kúkurinn skellur í vatnið og fullt af vatni fer á rassinn á honum/henni. Semsagt það fer piss úr þeim á rassinn á honum/henni...ógeðslegt. Gott er að setja eitt blað af andrésblaði í klósettið áður en fæðingin byrjar segir Árni Long og hann talar af eigin reynslu. Ég hef spurt nokkrar stelpur hvort þær noti lendingarpall en þær vita bara ekkert hvað ég er að tala um og skilja mig ekki.

Og hver kannast ekki við að vera útað borða eða vera á djamminu og þú þarft að kúka. Þú ferð inná klósett og það er búið að pissa á alla setuna og þú veist ekkert hvað á að gera. Ef þú hefur horft á American Pie 1 þá vitið hvað ég er að tala um. Þú raðar klósettpappírnum hringinn í kringum setuna þangað til að það er orðið svo þurrt að þú getir setið á setuna. Og svo má ekki gleyma að setja lendigarpallinn (hreiðrið) áður en þú lætur allt flakka.


En jú þetta er pæling hjá mörgum og ég held að margir hverjir þora ekkert að viðurkenna að þeir geri þetta. Þetta er ekki neitt til að skammast sín fyrir því manni á að láta sér líða vel þegar maður er að kúka. Sumir segja að það sé allt að 7% fullnæging þegar maður er búinn að kúka, en ég tek það hér fram að ég er ekki að fá fullnægingu að kúka.



Nóg um þetta helvítis kúkatal. Ég hef oft verið að spá í hvort það sé staðreynd að þegar maður er að drekka að manni er alveg sama með hverjum maður er að kela við. Þá er ég að meina að þegar maður er búinn að drekka í sig nokkra bjóra þá fer maður á djammið ýkt ölvaður og sér allar ljótu stelpurnar sem ýkt fallegar stelpur, eins og í myndinni Shallow Hall. Ég hef ekki lent í þessu (eða ekki svo ég muni) en ég er búinn að heyra það frá mörgum a þeir hafi séð vini sína eða hreinlega bara lent í þessu sjálfur. Ég held að það sé ekkert sérstaklega gaman að vakna hliðiná einhverjum stelpu sem er algjör horror....


Já þetta er helvíti góð kenning en þessi mynd er á plaggati inní herberginu mínu og vekur mikla athygli strákanna og ákvað ég að taka mynd af þessu...


Ég vill fá ykkar skoðun á því hvernig ykkur finnst nýji bannerinn minn og hvorn ég á að vera með því ég veit ekkert, það er í rauninni allt undir ykkur komið.

Þetta er sá nýji...

Þetta er sá gamli...


Free polls from Pollhost.com
Hvor er flottari?
Þessi nýji Þessi gamli Reyndu að hafa einhvernveginn öðruvísi


En jæja ég ætla að hætta í bili. Ég er búinn að kjafta alltof mikið hérna og ég bara er orðinn þreyttur að skrifa. Ég er nú þegar kominn með harðsperrur í vísifingur og ég held að ég hafi fótbrotnað á vinstra eyra og að ég sé lærbrotinn á tánni....nei smá djók í gangi hérna :-D


Kveðja GummOn


:: Gummi Jónss mánudagur, apríl 04, 2005 [+] :: |
...
:: sunnudagur, apríl 03, 2005 ::
::.Aum helgi


Ég get nú ekki sagt annað að þetta hefur verið hálf léleg helgi. Þetta átti að verða víst einhver rosaleg helgi og ég, Rikki og Helgi ætluðum svvoooo að taka á því á laugardeginum en það fór eitthvað úrskeiðis. En allavega ef ég á einhversstaðar að byrja þá á föstudeginum var ég frekar rólegur. Ég hitti stelpurnar Valdísi, Beggu, Unu og Anítu heima hjá Unu þar sem þær píurnar voru að drekka. Gaman að hitta Anítu og Unu loksins eftir að hafa ekki hitt þær lengi lengi. Ég skutlaði þeim niðrí bæ og þar sem ég stakk þær af og fór til Rikka. Hann var að vinna á Ópus og var bara ágætis stemmari. Ég var með honum í búrinu til lokunar og var bara að Dj-ast eitthvað með honum sem er ýkt gaman. Svo fór ég yfir á Torvaldssen og kíkti á liðið, þau eru alltaf jafn hress og hann Elvar er sá allra hressasti gaurinn í bænum og er ekki kallaður fyllibittan fyrir ekki neitt. Svo var hitt fólkið þarna líka og eins og ég segji alltaf jafn gaman að hitta alla.



Þetta er hann Elvar sá allra hressasti gaurinn í bænum...


Á laugardeginum vaknaði ég eitthvað um 11:00 leitið og fór að keppa í handboltanum. Við gerðum jafntefli í leiknum 32 - 32 á móti Hk eftir að hafa verið yfir allan leikinn. Við vorum algjörir klaufar að tapa þessum leik. Svo dæmdi ég einn leik og dæmdi hann bara með prýði að ég held. Þegar þetta var búið fór ég bara aðeins í Smáralindina að hitta bróðir minn og svo í Bónusvídjó að hitta Helga kallinn...ég fór í spilakassan og setti 500 kall í hann og vann mér 5.000 krónur :-D veiveivei....ég er svo heppinn í spilum og greinilega óheppinn í ástum eða svo segir hún Solla mín :-D Svo fór maður bara heim og fékk sér að éta!! Ég fór svo í herbergið mitt og STEINrotaðist þar....ég svaf alveg til að vera 23:30 :-S og strákarnir búnir að vera hringja í mig allt kvöldið...en ég reif mig upp og fór til Rikka í smá teiti..... í teitinu hans Rikka voru Helgi, Mikki, Ívar, Una, Aníta, Begga, Valdís, Herdís og einhverjir gaurar sem ég þekkti ekkert. Ég fékk mér að drekka og var orðinn nokkuð góður. Við fórum niðrí bæ og beint á Ópus!! Þar var bara helvíti gaman en einum of mikið af útlendingum. Við dönsuðum í pínu stund þar og svo fór Rikki og Valdís bara heim. Ég og Helgi vorum bara eftir og líka reyndar Herdís og við skruppum aðeins yfir á Torvarldssen þar sem var verið að loka....við fengum okkur nokkur staup og svo bara fórum við heim. Ég var mjög bitur því þetta er orðið hundleiðinlegt, maður þarf bara að fara fá sér kærustu....maður er bara eitthvað einn í þessum vinahóp því hinir vinir mínir eru alltaf svo uppteknir að fara ríða eða já....við förum ekkert nánar útí það!!! En svona er þetta.....Herdís skutlaði mér þar sem bíllinn minn var og ég fór bara að sofa í bílnum!! Ég svaf í klukkutíma og keyrði svo niðrí bæ því ég ætlaði að hitta eina vinkonu mína sem ég hitti svo ekkert því hún var farinn heim.



Ívar og ég hressir á kantinum...




Begga og Valdís ýkt sætar á þessari mynd...


Okey svo ætlaði ég bara að fara heim en vitir menn ég var stoppaður af einhverjum tveimur gaurum og þeir spurðu mig hvort ég væri til í að skutla þeim heim fyrir 1000 kall...ég sagði bara jújú ekki málið því ég var náttúrulega bara á leiðinni heim.......VITIR MENN þetta voru hommar og það var ógeðslega fyndið að heyra þá tala saman...því þeir töluðu svo ýkt hommalega og voru bara JÁ hommalegir og það var bara gaman af þeim þangað til þeir fóru í sleik..... þá var ekkert sérlega gaman og ég gaf í til þess að verða kominn fyrr heim!! En þetta var samt eitthvað svo steikt.


En já í dag á þessum fallega Sunnudegi þá gerði ég nú bara EKKERT....ég fór reyndar í bíó á Danny the dog með Halla og Eddu ;-) það er helvíti góð mynd....kom mér virkilega á óvart, að vísu pínu væminn og stundum ýkt fyndin og stundum ýkt þetta og hitt!!




Þetta er ég og varð ég að enda þetta blogg með þessari mynd hérna því þetta er án efa steiktasta mynd af mér....hahah ég hló allavega mikið þegar ég sá hana, góður svipur!!!


Kveðja GummOn

:: Gummi Jónss sunnudagur, apríl 03, 2005 [+] :: |
...

Gestir